<
Dagbók Ernu og Mödda
Blogg:
Soffía
Stína
Herdís
Bumbublogg


Hlekkir:
Drudge Report
Sálufélaginn
Liverpool
The Onion
Félagið Ísland-Palestína
Columbia
Columbia Bio

Nýtt blogg -->









Gamlir dagar:






Powered by Blogger
Kíkið á nýju heimasíðuna og nýja bloggið okkar! www.ernaogmoddi.com www.ernaogmoddi.com/blogg



mánudagur, júlí 15, 2002
 
Nýjustu færslurnar eru á www.ernaogmoddi.com/blogg

sunnudagur, júlí 14, 2002
Þegar kötturinn er úti, leika....
 
Ásthildur kíkti til mín niður á Manhattan á föstudagskvöldið. Við fórum út að borða í Litlu Ítalíu, og fórum svo og hittum Óla, vin hennar, á Itremerli á West Broadway. Þar var Óli með vinum sínum -svaka stuð í gangi. Á staðnum virtust samt ekki vera neitt nema rússneskar og lettneskar konur með skuggalegum amerískum karlmönnum. Ein þeirra var í styttsta pilsi í heimi, með bláasta augnskugga veraldar. Hún sat við barinn og borðaði sesarsalat og drakk með Grand Mariner, straight up!

Frá Itremerli fórum við á Nakta hádegisverðinn, þar sem var dúndurstemning að vanda. Við dönsuðum þar til lapprinar voru að detta af okkur til klukkan fjögur um nóttina. Sem betur fer var körfuboltaþjálfarinn ekki í dyrunum. Við skröltum heim í morgunsárið, og Ásthildur gisti hjá mér.

Í gær dró Ásthildur mig svo í endurhæfingu norður til New Canaan, þar sem við sátum í sólbaði við sundlaugarbakkann allan daginn og svo buðu Maggi og Edda öllum út að borða um kvöldið. Ég fór heim til mín í tóman kofann eftir það. Heilsan var nú ekkert frábær. Ég keypti froðublaðið Marie Claire til að lesa á leiðinni heim í lestinni, svona til þess að ofreyna nú alls ekki heilasellurnar við lestur, en þetta blað hefur mjög lítið lesefni, aðallega bara myndir af fötum og glingri, fullkomið fyrir þunna konu.

Þegar heim kom hjúfraði ég svo um mig upp í sófa og horfði á klassíkerinn Hannah and her sisters. Það var frábært, alveg þangað til að ég heyrði í músinni. Ég sem hélt að Miss Maddie hefði fælt hana í burtu. Mér stóð nú ekki alveg á sama að vera alein og óvarin heima, með mús í stofunni. Enginn Mörður til þess að vernda mig. Þannig að þegar ég fór að sofa hafði ég kveikt á öllum ljósum í stofunni og á sjónvarpinu líka, því einhvers staðar heyrði ég því fleygt að mýs fældust sjónvörp út af hátíðnihljóðinu. Svo lokaði ég hurðinni inn í svefnherbergið og setti viftuna á hæsta styrk, ekki af því að mér væri heitt, heldur til þess að framleiða sem mestan hávaða, þannig að ég myndi nú ekki heyra í músinn ef hún væri á vappi.

Ég get ekki beðið eftir því að meindýraeyðirinn komi í heimsókn.

föstudagur, júlí 12, 2002
Ný síða
 
Lesendur góðir! Nú dregur til tíðinda í bloggheiminum, því við Mörður erum í þann mund að færa bloggið okkar á: www.ernaogmoddi.com/blogg

Lautarferð og barkvöld
 
Gærdagurinn var fínn! Ég skellti mér í pikknikk líffræðideildarinnar. Það var gaman að hitta bekkjarfélagana aftur, en við höfum lítið hittst öll saman síðan að Core-kúrsinum sleppti. Það var mikið spjallað og eins og venjulega gerði Tim góðlátlegt grín að mér fyrir að vera Íslendingur (hann getur lítið sagt, hann er jú Bandaríkjamaður) og við Adelene og Noelia lögðum á ráðin um að skella okkur á kajaknámskeið saman og prófa að fara á kajak á Hudsonánni.

Eftir lautarferðina fór ég svo niður í bæ á bjórkvöld Íslendinga og hitti þar íslenska gengið. Hildur, Hulda, Sigga og Ísold voru í góðum gír, að Björgvin, framkvæmdastjóra Icexpress ógleymdum. Samkoman leystist þó óvenjusnemma upp og við fórum heim um eittleytið. Það var eiginlega ekki um annað að ræða en að forða sér, því það var einhver miður aðlaðandi amerískur karlmaður að abbast upp á mig, og hætti ekki þó hann vissi að ég væri gift. Honum fannst eiginlega bara hljóta að vera að ég, gifta konan, vildi einhverja tilbreytingu fyrst að ég væri ein úti að skemmta mér. Hildur sagði mér að svona væri þetta nú oft, þessir Kanar væru svo aggressífir. Ég er hins vegar nær alltaf á ferð með Merði, þannig að þá er ég alveg laus við svona vesen! Tjáh.. maður er háfvarnarlaus þegar eiginmaðurinn er í burtu!

fimmtudagur, júlí 11, 2002
Solbriller
 
Júhú!!!! Við vorum að fá pakka í póstinum! Fyrir tveimur mánuðum síðan fengum við kynningartilboð í gegnum blaðið Backpacker, á sólgleraugum. Allt sem við þurftum að gera var að senda þeim miða og merkja við hvaða sólgleraugu á miðanum okkur langaði í, og borga sendingarkostnað. Þetta eru tvöhundruðdollara sólgleraugu stykkið, þannig að þetta var þvílíkur fengur fyrir fólk sem vantar sólgleraugu.

Og þau voru að koma í póstinum í dag. Mín eru ýkt kúl. Ég hlakka til að sjá Mödda með sín...

Crisp and clear
 
Bjartur og ferskur morgun í New York. Það voru bara tuttugu gráður úti þegar ég vaknaði í morgun (fyrir klukkutíma síðan), og ég er því að íhuga að mæta ekki fyrr en eftir hádegi á labbið og nýta morguninn í smá hlaupasprett. Það er líka svo fínt að hlaupa svona í júlí, því að frjókornamagnið hefur lækkað mikið og ég get því dregið andann á hlaupunum. Það er svo lítið af frjói heima að þetta truflar mig venjulega ekki mikið, en hér er svo mikill gróður að stundum er eins og loftið sé mettað af frjókornum. Munurinn er líka að ég finn bara fyrir grasfrjóinu heima, en hér er svo mikð birki að ég fæ ofnæmi fyrir því líka.

Ég hef lítið að gera á labbinu í dag, ég er að bíða eftir að allt efnið í tilrauninrnar mínar komi í hús. Ég ætla samt að kíkja þangað eftir hádegi, og lesa kannski eina eða tvær vísindagreinar áður en ég fer í hina árlegu lautarferð doktorsnemanna í deildinni. Hún er nú reyndar bara fyrir framan bygginguna, en er ágætisafsökun fyrir því að skvetta í sig smá bjór undir berum himni og kannski næla sér í kjúllalegg, ef Justin bíður upp á svoleiðis. Ekki verður minna að gera eftir lautarferðina, því að í kvöld er annar fimmtudagur mánaðarins og brjórkvöld Íslendinganna suður á Telephone Bar. Ekki leiðinlegt!

þriðjudagur, júlí 09, 2002
Fararsnið á kallinum
 
Nú er Mörður að pakka niður í töskur. Hann er að fara í sumarfrí til Íslands á morgun, þannig að ég verð grasekkja í tíu daga. Það verður pínu skrítið að koma alltaf heim í tóman kofann. Mér segir líka svo hugur að ég eigi eftir að vinna meira en undanfarið þar sem það verður ekki neitt sem dregur mig heim.

Ég hlakka líka til þess að Mörður komi heim aftur, sérstaklega af því að hann kemur kannski með soðningu úr Laxá í Mývatnssveit.

mánudagur, júlí 08, 2002
Skaftárhlaup
 
Fréttirnar af Skaftárhlaupi minna mig á þegar við Mörður gengum á milli Sveinstinds, Skælingja og Eldgjár verslunarmannahelgina í hittifyrra. Þá var einmitt Skaftárhlaup og ótrúlegt að sjá hversu bólgin og brjáluð áin varð. Ég held líka að þessi leið sé ein sú fallegasta á Íslandi. Mér finnst hún að minnsta kosti fallegari en Laugavegurinn og svo leiðin sem við Herdís gengum í vor á milli Mývatns og Ásbyrgis, og þá er nú mikið sagt. Það er líka miklu meiri óbyggðafílíngur inni á Sveinstindi en á hinum tveimur leiðunum, manni líður einhvern veginn eins og maður sé staddur á tunglinu þegar maður stendur á Sveinstindi og horfir yfir landslagið. Þetta var líka svaka rómó að vera bara tvö á ferð í þrjá daga, og ekki skemmdi brakandi blíðan fyrir.

Bull.. acute.. aelig
 
Ég hata Makka. Ég verð alltaf fúl þegar ég sé: Switch auglýsingarnar í sjónvarpinu. Núna var ég búin að skrifa færsluna hér á undan með þvi að nota unicode táknin fyrir alla íslensku stafina, því Lyklaboðssían hans Sindra virkar ekki í Makkintoss. Svo þurfti ég að breyta dálitlu og ýtti á Edit og þá hurfu allir íslensku stafirnir....

Þess má geta að þessi færsla var líka skirfuð þannig. Ég ætla sko ekki að ýta á Edit núna.......

Bakið betra, gelbið og tveir kossar.
 
Jæja, mér er næstumþvi batnað i bakinu, thannig að ég er ekki thess heiðurs aðnjótandi lengur að bera viðurnefnið Kroppinbakur. Er það vel.

Mánudagar eru pínulítið erfiðir á nýja labbinu. Það eru nefnilega labbfundir á mánudagsmorgum,fram yfir hádegi, þannig að ég byrja aldrei á neinu fyrr en í fyrsta lagi klukkan eitt. Þetta verður svo enn erfiðara í vetur ef ég verð á þessu labbi, því frá tólf til rúmlega eitt er málstofan, þar sem ýmsir vísindamenn flytja erindi.

Þessari mánudagsstemningu virðist fylgja vinna frameftir, ég sit hér enn á labbinu klukkan rúmlega ellefu og bíð eftir því að gelin mín klárist. Það er reyndar bara kósí. Ég er búin að vera að dúlla mér við að búa til allskonar lausnir sem ég þarf að nota og hlusta í leiðinni á rokk í útvarpinu.

Það versta er að ég næ sennilega lítið að hitta Mörð í dag, hann kyssti mig bless thegar ég var hálfsofandi í morgun og svo mætti ég honum þegar ég var á leiðinni heim í kvöldmat og hann á leiðinni í skvass í gymminu, en þar smellti hann á mig öðrum kossi.

laugardagur, júlí 06, 2002
Hunchback takes the town...
 
Krypplingurinn er nú bara búinn að vera býsna aktífur í dag. Ég vaknaði með þá ofskynjun að mér væri batnað í bakinu, en ónei, eftir að hafa sest niður með seríós og tékkað á póstinum mínum og lesið mbl.is (staðalmorgunrútínan á þessum bæ) komst ég að því að ég halla enn aðeins til hægri og á erfitt með að beygja mig.

Ég fór í tilgangslausa ferð í vinnuna, við fundum engin dNTP í PCRið mitt, og það er frekar tilgangslaust að pje-sé-erra án njúkleótíða, þannig að ég ákvað að þjálfa á mér bakið og fara í göngutúr. Það vildi svo skemmtilega til að göngutúrinn lá fram hjá nokkrum búðum, og ég endaði á því að kaupa svarta plattformskó og stuttermabol, allt í boði Visa. Ég íhugaði að finna svona hjálpartækjabúð fyrir fatlaða og kaupa mér svona göngugrind á hjólum til þess að auðvelda mér gang. En þá fann ég barasta að bakinu leið mikið betur og ég plampaði hress í bragði heim á leið. Það er alveg ótrúlegt hvað smá sjoppíng getur gert fyrir heilsuna.

Ég var svo hress þegar ég kom heim, að ég fór og hljóp fimm mílur (lesist með enskum hreim) og eldaði svo karrýhrísgrjón a' la Rose Elliot, handa mér og manninum mínum. Með þessu áframhaldi hleyp ég maraþon og held hundraðmannaveislu næsta laugardag.




Myndirnar Okkar



Sendið okkur línu


Við erum að fíla:
Heimur hlauparans
Theodore Roosevelt
Dilwale Dulhania le Jayenge
Sigur-Rós
Cesaria Evora
Joe Locke